SÚKKULAÐIKÖKUR

SKÚFFUKAKA (HEIÐA)
2 glös hveiti
1 1/2 glas sykur
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk natron
1/2 salt
1 msk kakó
2 egg
1 glas mjólk
150 gr smjörlíki (brætt við vægan hita)
Baka við 200 gráður í 20-30 mínútur
Krem:
200 gr smjörlíki brætt
300 gr flórsykur
1 1/2 msk kakó
1 msk kakómalt
1 egg
1 tsk vanilludropar
LITLA SYNDIN LJÚFA (HEIÐA)
(þetta er geeeeeðveikt gott!)
140 g smjör og meira til að smyrja formin
140 g 70% Nóa Siríus súkkulaði
2 egg
3 eggjarauður
140 gr flórsykur
60 gr hveiti
Hita ofn í 220 (ekki blástur)
Baka í 11 til 12 mín
Smyrja 6 lítil soufflé form.
Setja smjör og súkkulaði í pott og bræða við vægan hita. Takið af hitanum um leið og smjör er bráðið og hrærið þar til súkkulaðið er alveg bráðið. Þeytið egg og eggjarauður í skál og setjið svo flórsykurinn út í og þeytið vel. Hellið súkkulaðiblöndunni saman við og þeytið á meðan og hrærið að lokum hveitinu saman við. Skiptið deginu jafnt í formin (um 1 dl) og gætið að fylla þau ekki alveg. Setjið form á plötu eða ofnskúffu og bakið í 11 til 12 mínútur.
Takið þær út og látið kólna í um 3 mínútur. Rennið hnífsblaði í kringum kökurnar til að losa þær betur og hvolfið á diska.
Ef degið er tekið beint úr kæli og sett í form, baka í 14 mín.
Ef degið er kælt í formunum bæta við 1-2 mín.
Baileysmousse (Hrafnhildur)
(6-7 rauðvínsglös)
250 gr. Soðinn rjómi
100 gr. Mjólkursúkkulaði
150 gr. Dökkt súkkulaði
375 gr. Létt þeyttur rjómi
80 gr. Baileys
5 hindber í hvert glas
Rjóminn er soðinn upp. Hellið 1/3 af rjómanum yfir súkkulaðið og látið bráðna. Hrærið saman í fastan massa og hellið restinni af rjómanum út í. Setjið baileys út í og látið standa í ca. 35C (gráður). Blandið léttþeyttum rjóma saman við. Setjið í glös og hindberin sett út í glösin. Setjið glösin í kæli og skreytið með smávegis af rjóma, rifnu súkkulaði, kakói og hálfu hindberi.