ÝMSAR KÖKUR
Eplakaka (Fjóla)
150 g smjör
3dl sykur
3 egg
3 1/2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
2-3 epli
2 msk sykur
3/4 msk kanill
2 msk möndluspænir (má sleppa, ég læt stundum súkkulaði í staðinn)
Hrærið smjör og sykur þar til það er orðið létt og ljóst. bætið eggjunum í , einu í senn og hrærið vel í á milli.
Blandið hveiti og lyftidufti saman við. Setjið deigið í smurt form. Afhýðið eplin og skerið þau í báta. Blandið saman sykrinum og kanil og veltið eplabátunum upp úr því og raðið þeim svo á kökuna. Stráið kanilsykrinum sem eftri er á kökuna og svo möndluspónum. Bakið við 175°C í u.þ.b 40 - 45 mín.
Epla og perukaka (Fjóla)
Deig:
125 g hveiti
125 g smjör
85 g púðursykur
50 g haframjöl
50 g hnetur saxaðar
Hitið ofninn í 190°C (180°C með blæstri). Setjið hveiti og smjör í hrærivél og hrærið saman. Bætið púðursykri, haframjöli og hnetum saman við og geymið deigið á meðan þið gerið fyllinguna.
fylling:
500 g epli
300 g perur
3 msk púðursykur
3 msk vatn
1 msk sítrónusafi
3 Mars-súkkulaðistykki, grófsöxuð
1 msk. strásykur
Flysjið eplin og perurnar og skerið í báta. Setjið eplin´ásamt púðursykri, vatni og sítrónusafa í ofnfast fat. Breiðið álpappír yfir og bakið í ofninum í u.þ.b 15 mín. Takið fatið úr ofninum, hrærið svolítið í og bætið perubitunum og marsinu við eplin. Myljið nú deiguð yfir, stráið strásykrinum yfir og bakið áfram í 25 - 35 mínútur. Berið fram heitt eða volgt.